Skip to main content
< All Topics
Print

Að eldast – Næringarþörf

Ég er að hugsa um þennan póst til að fjalla um hvernig næringarþörfin breytist þegar við eldumst. Ég hef hugsað mest um þetta fyrir sjálfan mig út frá hvernig ég er að endurbyggja líkamann/taugakerfið/heilann eftir skemmdir, en það er ljóst að ég er að eldast, ég ætla mér nú að vera ungur öldungur í anda og líkama og ágætt að taka saman smá yfirlit um það sem ég vil hafa í huga.

Ég tók þessar upplýsingar úr samtali Robins feðganna.

  • Eftir 60 ára aldur þurfum við 10-20% meira prótein. Líka meira áríðandi að fá þetta úr plönturíkinu og þá að sjálfsögðu lífrænt ræktað, hér á Íslandi held ég að við eigum góðan fisk og margt kjöt en er tortryggin með að ekki séu birtar upplýsingar um plastagnir, þungamálma, sýklalyf og fleirra í íslenskum matvælum.
  • Zink er meira áríðandi til að hjálpa sárum að gróa, ég hef fengið ýmis útbrot sem ég hef tengt meðalanotkun, ég þarf að passa þetta. Það er töluvert af zinki í baunum, fræum og hnetum.
  • Kalk getum við fengið úr mörgu af dökk græna grænmetinu, t.d. brokkáli, grænkáli og arigula.
  • D vítamín. Hér á norðurslóðum fáum við yfirleitt ekki nægt sólskin til að húðin geti framleitt nóg D vítamín. Og með aldrinum minkar geta húðarinnar til að framleiða D vítamín og ég sá tilvísun í að rannsóknir sýndu að um sjötugt er geta lifrar og nýra til að framleiða D vítamín aðeins um fjórðungur að því sem hún var um 20 ára aldurinn. ( ekki sýst D3)
  • B12 samkvæmt ýmsum rannsóknum þá dregur oft úr getu okkar til að vinna B12 úr fæðu, því er meira áríðandi að fá það sem bætiefni og ekki síst fyrir grænmetisætur. Á mínum aldri gæti verið gott að taka inn 500-1000 mícrógröm.
  •  

Lagfæringar, stofnfrumur, Vaxtarhormón .... Föstur...

Table of Contents